Vörulisti

 
 
Vnr            Lýsing
008 2-3kg  Heill ferskur lax Superior
009 3-6kg  Heill ferskur lax Superior
016 Fersk laxaflök beinhreinsuð D-trim
010 Fersk bleikjuflök
 
 
017 Eðal reykt sneidd laxaflök
019 Eðal reykt laxaflök
021 Eðal reyktur lax bitar
023 Eðal reyktur lax sneiðar 100g
0301 Reyktur lax í gjafaöskju ~600-900g
 
033 Eðal grafin sneidd laxaflök
031 Eðal grafin laxaflök
032 Eðal grafinn lax bitar
030 Eðal grafinn lax sneiðar 100g                                    
0303 Eðal grafinn lax í gjafaöskju ~600-900g 
058 Reyktur silungur heil flök
060 Reyktur silungur bitar
0304 Iceland Gourmet gjafaaskja
(Reyktur lax,Grafinn lax og Piparlax
auk sósu í gjafaumbúðum.)
 
091 Graflaxssósa 150ml
09100 Graflaxssósa 350ml
 
Frostvara á grillið
4 Hvítlauksmarineraðir laxabitar
5 Toscana laxabitar
6 BBQ laxabitar
13 Laxabitar með roði
 

Fréttir

    • Eðalfiskur mun taka þátt í atvinnusýningu laugardaginn 25. febrúar n.k. Í Hjálmakletti (húsi Menntaskóla Borgarbyggðar) ásamt á fimmta tug fyrirtækja úr héraðinu. Sýningin hefst með málstofu kl. 10.30 - 12.00 en klukkan 12.30 verður sýningin sett og stendur til kl. 17.00.

       
      Það er jákvæður undirtónn sem hvetur fyrirtæki til samstarfsins en Rótarýklúbbur Borgarness hefur veg og vanda af skipulagningu sýningarinnar.
    • Vegna fréttar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á vef stofnunarinnar og í flestum fjölmiðlum landsins af notkun iðnaðarsalts í matvælaframleiðslu fordæmir Eðalfiskur ehf. vinnubrögð og umfjöllun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
       
      Gefið er til kynna með áberandi hætti að Eðalfiskur ehf. hafi notað umrætt iðnaðarsalt í framleiðsluvörur sínar.
       
      Óforsvaranlegt er af opinberum stofnunum eins og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur að birta lista yfir kaupendur, algerlega án þess að athuga við aðila á listanum hvort, og með hvaða hætti saltið hafi verið notað.
       
      Rétt er að árétta að Eðalfiskur keypti 1 bretti af umræddu Akso Nobel salti þann 6. desember s.l.   Við móttöku í Borgarnesi varð vart að um salt til iðnaðarnota væri að ræða og saltið því ekki notað til vinnslu hjá Eðalfiski en notað sem úrsalt væri að ræða til að salta plön við starfstöðvar fyrirtækisins í nú í desember.
       
      Ljóst þykir að gengið hefur verið gegn almennum ákvæðum stjórnsýslulaga, sem m.a. hafa að geyma reglur um rannsóknarskyldur, meðalhóf, andmælarétt og fleira.  Með svona opinberri birtingu er í raun farið með aðila eins og þeir hafi gerst brotlegir við lög og reglur án þess að það hafi neitt verið rannsakað.
       
      Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur mátt gera sér grein fyrir að litið yrði svo á (af neytendum og í fréttaflutningi) að þeir sem hafi keypt umrætt salt, hafi notað það í matvælaframleiðslu.
       
      Gríðarlegt tjón fyrirtækja getur orðið af svonalöguðu, og því telur Eðalfiskur ehf. ástæðu til að kanna lagalega stöðu sína og falið LEX lögmönnum að annast málið fyrir sína hönd.
       
      Kristján Rafn Sigurðsson, framkvæmdarstjóri
    • Af gefnu tilefni vill Eðalfiskur árétta að í verðkönnun ASÍ sem gerð var s.l. mánudag og birt á heimasíðu www.asi.is var ekki farið rétt með staðreyndir.
      Þar gat á að líta samanburð á Eðalfisks graflaxsósu og lítraverðið sagt vera ódýrast í Bónus.  Þá bregður bónda við því Eðalfiskur selur ekki Graflaxsósu sína til Bónus.
       
      Farið var strax fram á leiðréttingu við ASI sem hefur verið gert á heimasíðunni.