Vegna fréttar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
16 January 2012Vegna fréttar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á vef stofnunarinnar og í flestum fjölmiðlum landsins af notkun iðnaðarsalts í matvælaframleiðslu fordæmir Eðalfiskur ehf. vinnubrögð og umfjöllun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Gefið er til kynna með áberandi hætti að Eðalfiskur ehf. hafi notað umrætt iðnaðarsalt í framleiðsluvörur sínar.
Óforsvaranlegt er af opinberum stofnunum eins og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur að birta lista yfir kaupendur, algerlega án þess að athuga við aðila á listanum hvort, og með hvaða hætti saltið hafi verið notað.
Rétt er að árétta að Eðalfiskur keypti 1 bretti af umræddu Akso Nobel salti þann 6. desember s.l. Við móttöku í Borgarnesi varð vart að um salt til iðnaðarnota væri að ræða og saltið því ekki notað til vinnslu hjá Eðalfiski en notað sem úrsalt væri að ræða til að salta plön við starfstöðvar fyrirtækisins í nú í desember.
Ljóst þykir að gengið hefur verið gegn almennum ákvæðum stjórnsýslulaga, sem m.a. hafa að geyma reglur um rannsóknarskyldur, meðalhóf, andmælarétt og fleira. Með svona opinberri birtingu er í raun farið með aðila eins og þeir hafi gerst brotlegir við lög og reglur án þess að það hafi neitt verið rannsakað.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur mátt gera sér grein fyrir að litið yrði svo á (af neytendum og í fréttaflutningi) að þeir sem hafi keypt umrætt salt, hafi notað það í matvælaframleiðslu.
Gríðarlegt tjón fyrirtækja getur orðið af svonalöguðu, og því telur Eðalfiskur ehf. ástæðu til að kanna lagalega stöðu sína og falið LEX lögmönnum að annast málið fyrir sína hönd.
Kristján Rafn Sigurðsson, framkvæmdarstjóri



